ÉG er búin að reyna að blogga 4 sinnum í morgun... og svo kom í ljós að blog.centralkerfið er búið að vera bilað!!! ég var að verða brjál skohh..!!! Þetta er síðasta tilraunin sem ég geri við að blogga ef þetta tekst ekki núna þá bara upjors sko ;o)
GARG..!!! ég er alltaf svo ógislega heppin eða hitt þó
heldur.. minns var búin að skrifa langa bloggfærslu um
nákvæmlega EKKERT... en viti menn hún bara hvarf... ekki í
fyrsta skiptið sko sem ég lendi í þessu.. þetta kerfi getur
verið svo meingallað stundum!! *snökt*
En jæja nú geri ég aðra tilraun.. en í þetta skiptið ætla
ég að skrifa fyrst í notepad.. þannig að ég eigi þetta þá
allavegana til þessa að copyíja yfir aftur ef eitthvað
gerist!!! *smart girl*
En já þá hefjast skrifin um nákvæmlega ekkert... hvernig er
samt hægt að skrifa um ekkert? jaa það er stór spruning..
bulla nógu mikið og vaða úr einu í annað... það gæti verið
ágætis byrjun... SVona svipað og að hugsa ekki um neitt...
ég hef OFT reynt að hugsa um ekki neitt... En mér finnst ég
samt alltaf vera að hugsa um eitthvað þó það sé einmitt um
EKKI NEITT... haha... þekkir einhver þessa pælingu?
Hvernig er líka með allt draslið og ruslið heima hjá
manni.. Mér finnst svooo ógurlega erfitt að byrja að taka
til því það er ekkert voðalega gaman að gera það. En svo
þegar ég er byrjuð þá ætla ég að gera svo mikið og get bara
ekki hætt.. er þeta eðlilegt... en já úffs ég er búin að
sitja í tölvunni nákvæmlega í allan morgun.. og nú er
klukkan að verða hálf 11.. Ég er enn að reyna að koma mér
af stað í að taka til.. þvo þvottinn, búa um, brjóta saman
o.s.frv... en það gerist ekkert.. og ég sem var svooo viss
um að þetta myndi bara gerast að sjáfu sér ef ég hugsaði
bara nógu lengi um þetta... *snökt* það gerist
ekkert...kannski ég verði bara að standa upp og byrja...
Núna fer að líða að stór ammili hjá mér... vááá ég er að
verða búin að vera til í 30 ár!!! ég er að hugsa um að
halda bara smá ammili núna.. og svo ætlum við STefán að
mætast á miðri leið og halda 60. ammili bara saman í sumar
því hann nær þessum stóra áfanga eftir ár 
Nú eru rétt 2 dagar þar til ég verð komin á flugvöllinn í
Keflavík á leið til Ungverjalands
Ótrúlegt bara hvað
tíminn getur verið fljótur að líða stundum. Ég sæki kjólinn
á morgun og þá er þetta bara allt að verða ready, fyrir
utann minn ástkæra eiginmann.. hann hefur ekki enn fengist
til að spá í sínu outfitti... *$%%/$#* þessir karlmenn
alltaf svooo busy í vinnuni!!
*íllt í puttum af bulli*
g... 